Orðabók ordabok.is
  Uppfærð 02-06-10 
|  Beygingar  |  Sagnir  |  Glósur  |  Vefleit  |  Valkostir  |  English  |  Um  |  Samband  |  Áskrift  |  Heim  |  |  Útskrá  |

Kynning á ordabok.is
Rafrænar orðabækur
Vefurinn http://www.ordabok.is hefur að geyma rafrænar orðabækur, það er að segja orðabækur sem notaðar eru í tölvu. Orðabækurnar er hægt að kaupa í tvenns konar formi, annars vegar til uppflettingar í gegnum vefsíðu á Internetinu og hins vegar til uppflettingar í sjálfstæðu forriti sem heitir Tölvuorðabókin. Fjallað er um Tölvuorðabókina hér.

Í eftirfarandi umfjöllun er kynnt það sem vefsíðuaðgengið hefur upp á að bjóða. En hér er að finna samanburð á Tölvuorðabókinni og vefsíðuaðgenginu.
Hvaða orðabækur eru í boði?
Í boði eru nokkrar orðabækur, þ.e. ensk-íslensk, íslensk-ensk, dönsk-íslensk og íslensk-dönsk orðabók, auk stafsetningarorðabókar.
Áskrift
Aðgangur notenda að orðabókunum byggist á áskrift. Hægt er að velja sér mörg mismunandi löng áskriftartímabil, allt frá einum mánuði upp í 48 mánuði. Rétt er að taka fram að hugbúnaði eða orðaskrám er ekki hlaðið inn á tölvu hvers og eins heldur er flett upp í gegnum vefsíðu ordabok.is.

Boðið er upp á einstaklingsáskrift annars vegar og fyrirtækjaáskrift hins vegar. Einstaklingsáskriftin er fyrir 3 notendur eða færri. Fyrirtækjaáskriftin er fyrir fyrirtæki og stofnanir sem þurfa áskrift fyrir fleiri notendur. Sú áskrift kostar að sjálfsögðu meira í heildina, en kostnaður á hvern notanda lækkar eftir því sem fleiri leyfi eru keypt.

Einstaklingar
Orðabókarvefsvæðið er mjög auðvelt og blátt áfram í notkun og hentar vel fyrir alla aldurshópa. Áskrifandinn getur notað orðabókina á alls þremur tölvum og hentar því einstaklingsáskrift vel fyrir heimili þar sem öll fjölskyldan getur nýtt sér hana.

Fyrirtæki
Vefsvæðið ordabok.is er mjög hentugt og sveigjanlegt fyrir fyrirtæki og stofnanir og er þá miðað við að notendur séu fleiri en 3, en fyrirtæki sem þurfa aðgang fyrir 1-3 notendur eru betur sett með einstaklingsútgáfu. Starfsmenn geta nýtt sér afl þessarar mögnuðu orðabókar á vinnustað. En þar með er ekki öll sagan sögð. Hver starfsmaður getur skráð sig inn á 3 mismunandi tölvur, án þess að nota nema eitt leyfi. Þetta þýðir að hann eða hún getur notað orðabókina á borðtölvunni, á fartölvunni, heima hjá sér o.s.frv. Án aukagjalds. Þegar fyrirtæki eru að taka áskrift fyrir stórt hlutfall af sínum starfsmönnum geta þau fengið svokallaða IP-tölu áskrift en þá þurfa notendur ekki að skrá sig inn með lykilorði til að komast inn á ordabok.is. Það er því einstaklega hentugt kerfi sem kemur að mestu í veg fyrir nokkra kerfisumsjón af hálfu kerfisstjórans. En samt sem áður geta notendur skráð sig inn með lykilorðum þegar þeir eru ekki á vinnustaðnum sjálfum, t.d. heima eða erlendis.

Skólar
Aðgangur að ordabok.is er ókeypis fyrir alla grunnskóla og framhaldsskóla á Íslandi sem eru með fasta IP-tölu. Nemendur og starfsfólk hvers skóla fá því frían og hindrunarlausan aðgang að orðabókinni á meðan þeir eru á netsvæði skólans.

Stofnun áskriftar
Sá sem vill gerast áskrifandi að ordabok.is fer á þessa síðu til að stofna áskriftina. Fyrirtæki sem óska að fá tilboð vegna áskriftar hafi vinsamlegast samband hér.

Áskrifandinn fær strax aðgangsorðin sín í tölvupósti og getur skráð þau inn og byrjað að nota orðabókina áður en mínútan er liðin. Eftir að hann hefur skráð sig inn í fyrsta skipti þarf hann ekki að skrá inn lykilorðin á þeirri tölvu, nema kakan (cookie) fyrir orðabókina glatist. Týnist eða gleymist aðgangsorðin er auðveldlega hægt að fá þau send í tölvupósti á þessari síðu.

Þegar um fyrirtæki er að ræða, er hátturinn sá að umsjónaraðilinn innan fyrirtækisins fær tölvupóst með aðgangsorðum og hann framsendir þau á þá starfsmenn sem eiga að fá aðgang. Allir innan fyrirtækisins nota sama notandanafn og sama lykilorð. Hvorki umsjónaraðilinn né ordabok.is þurfa að stofna hvern notanda því það gerist sjálfkrafa þegar notandinn skráir sig inn á ordabok.is með aðgangsorðunum.