Orðabók ordabok.is
  Uppfærð 02-06-10 
|  Beygingar  |  Sagnir  |  Glósur  |  Vefleit  |  Valkostir  |  English  |  Um  |  Samband  |  Áskrift  |  Heim  |  |  Útskrá  |

Málfar - leiðréttingaforrit
Kaupa Málfar
Kökur (cookies) virðast ekki vera virkar hjá þér. Þær verða að vera virkar til að þú getir sótt Málfar. Vinsamlega smelltu hér til að skoða leiðbeiningar um þetta.
Ný útgáfa
Málfar er nýlega komið út aftur eftir miklar endurbætur. Lesa nánar hér.
Kynning
Málfar er leiðréttingaforrit fyrir Microsoft Word og Microsoft Outlook for Windows (ekki þó Outlook Express né Outlook 2007 og nýrri). Það er notað til að lesa yfir íslensk skjöl og benda notandanum á stafsetningarvillur. Forritið er mjög hraðvirkt og getur lesið 10 blaðsíðna ritgerð á aðeins nokkrum sekúndum. Það er mjög vandað, enda byggir það á traustum grunni þar sem það notar orðabækurnar frá ordabok.is. Málfar er samhæft við Microsoft Word 2010 og eldra. Málfar er einnig samhæft við nýjustu Windows-útgáfur og er hægt að nota það í Windows XP, Windows Vista og Windows 7, 32 bita eða 64 bita útgáfum. Málfar er ekki til fyrir Macintosh.
Málfar
Uppsetning og notkun
Málfar er hugbúnaðarpakki sem þú getur sótt hér og sett inn á tölvuna þína. Stærð pakkans er 8 MB og tekur 1-2 mínútur að sækja hann. Eftir að þú hefur sótt Málfar þarftu ekki Internet-tengingu til að nota það. Einstaklingur sem kaupir Málfar getur sett það inn á allt að 3 tölvur. Málfar er ekki selt með áskriftarfyrirkomulagi. Notkunin er ekki bundin við tiltekinn tíma, svo sem eitt ár, heldur er notandanum heimilt að nota hugbúnaðinn án tímatakmarkana.
Verð
Fyrir áskrifendur að ordabok.is og þá sem kaupa Tölvuorðabókina kostar Málfar 900 kr. (gildir fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem kaupa fyrir 3 notendur eða færri). Fullt verð er annars 3.900 kr. fyrir þá sem ekki eru áskrifendur. Fyrirtæki sem hafa áhuga á Málfari fyrir fleiri en 3 notendur hafi samband í gegnum ordabok@ordabok.is.