Orðabók ordabok.is
  Uppfærð 02-06-10 
|  Beygingar  |  Sagnir  |  Glósur  |  Vefleit  |  Valkostir  |  English  |  Um  |  Samband  |  Áskrift  |  Heim  |  |  Útskrá  |

Tölvuorðabókin - nýjustu útgáfur
Hér er yfirlit yfir nýjustu útgáfur Tölvuorðabókarinnar.
Hægt er að ná í nýjustu útgáfu hér.
Nánari kynningu á hugbúnaðinum er að finna hér.
Tölvuorðabókin 2009, endurbætt útgáfa 9.1
Þessi útgáfa kom út í apríl 2010. Hefur hún að geyma 20.000 ný uppflettiorð, þ.e. 10.000 í ensk-íslensku orðabókinni og 10.000 í íslensk-ensku orðabókinni. Engar breytingar voru gerðar á hugbúnaði að þessu sinni.

Útgáfa 9.1 er ókeypis fyrir þá sem eiga Tölvuorðabókina 2008 eða 2009.
Tölvuorðabókin 2009
Þessi útgáfa kom út síðla árs 2009. Í Tölvuorðabókinni 2009 voru eftirfarandi nýjungar:

  1. Ný dönsk-íslensk og íslensk-dönsk orðabók fylgir hugbúnaðinum, um 45.000 uppflettiorð samtals. Hér er um tilraunaútgáfu á þessum orðasöfnum að ræða og er því ekki tekið sérstakt gjald fyrir þau. Fyrirhuguð er stækkun á þessum orðabókum og munu þær væntanlega verða seldar sem sér vara í framhaldinu. Auk þeirra fylgja að sjálfsögðu ensk-íslenska og íslensk-enska orðabókin eins og verið hefur. Þess má líka geta að ef notandi á dönsk-íslensku orðabókina sem kom út áður fyrir Tölvuorðabókina, mun hann áfram hafa aðgang að henni á sama hátt og verið hefur.
  2. Hjálparsíður um hugbúnaðinn eru komnar á vefsíðu hjá ordabok.is, sjá hér, og er hægt að opna þær með skipun undir Hjálp-valmyndinni í forritinu.
  3. Tölvuorðabókin gerð samhæfð við Windows 7, sem og eldri Windows-útgáfur.
  4. Tölvuorðabókin 2009 er ókeypis fyrir þá sem eiga Tölvuorðabókina 2008.
Tölvuorðabókin 2008
Þessi útgáfa kom út snemma árs 2008. Síðasta útgáfa þar á undan, útgáfa 6.0, kom á markað árið 2003. Í Tölvuorðabókinni 2008 voru nokkrar megináherslur:

  1. Gífurleg stækkun á ensk-íslenska og íslensk-enska orðasafninu. Bætt hefur verið 25.000 nýjum uppflettiorðum í hvort orðasafn frá því Tölvuorðabókin kom síðast út (útgáfa 6.0). Bara stækkunin sjálf er svo vegleg að hún jafnast á við meðalstóra orðabók. Samtals er ensk-íslenska og íslensk-enska orðasafnið nú orðið um 155.000 uppflettiorð.
  2. Tölvuorðabókin hefur nú verið gerð samhæfð við Windows Vista. Þótt hún hafi áður verið ágætlega nothæf í því kerfi, hafa nú verið gerðar nokkrar mikilvægar breytingar til að laga hana betur að því umhverfi. Þess ber að geta að því verki er ekki lokið. Endurbætur (ókeypis) munu sjá til þess að notendur munu njóta þess starfs.
  3. Leiðréttingahugbúnaðurinn Málfar hefur verið í þróun síðustu ár, en hann byggir á leiðréttingaforriti sem var í Tölvuorðabókinni. Hann hefur nú verið endurskrifaður frá grunni og er orðinn mun vandaðri og öflugri. Málfar er sér hugbúnaður en er ekki hluti af orðabókinni. En þessi hugbúnaður er ómissandi verkfæri fyrir þá sem vilja hafa Word-skjölin sín rétt stafsett. Hann er því boðinn með Tölvuorðabókinni á einstaklega góðu verði. Málfar er samhæft við allar nýjustu útgáfur af Microsoft Word, þar á meðal Word 2007. Einnig getur hann tengst við Microsoft Outlook.
  4. Bæði Tölvuorðabókin og Málfar geta endurnýjað sig sjálf. Tölvuorðabókin hefur ávallt verið þekkt fyrir tíðar og góðar endurbætur sem auk þess hafa verið notendum að kostnaðarlausu. En fólk hefur gjarnan þurft að fara á vefsíðu orðabókarinnar til að sækja endurbót. Núna athuga bæði Tölvuorðabókin og Málfar í hverri ræsingu hvort komin sé endurbót eða ný útgáfa og spyrja þá notandann hvort eigi að endurnýja. Og allt gerist þetta á lipran og átakalausan hátt, og truflar ekki vinnufriðinn.
  5. Nú er hægt að sækja Tölvuorðabókina beint af Internetinu. Það hefur ekki verið hægt áður. Það er að sjálfsögðu mjög nútímalegt en aðalatriðið er að það sparar fólki bæði tíma og fyrirhöfn. Það þarf engan disk lengur. Og það þarf enga leyfisskráningu lengur. Það er því hægt að sækja Tölvuorðabókina inn á tölvuna sína hvar sem er í heiminum og byrja að nota hana innan 5 mínútna. Það skal tekið fram að ekki þarf Internetið til að nota Tölvuorðabókina, eða Málfar, eftir að þau hafa einu sinni verið sótt af Internetinu.