| Orðabók | ordabok.is |
| | Beygingar | Sagnir | Glósur | Vefleit | Valkostir | English | Um | Samband | Áskrift | Heim | | | Útskrá | |
| Umsagnir notenda | ||
| "Ordabok.is er frábær!" | ||
|
Vil koma því til skila að mér finnst “orðabók.is” vera sérdeilis gott og skilvirkt verkfæri. Frábært að hún skuli vera til, frábærlega vel unnið forrit. -- Guðmundur Valur Stefánsson, verkefnastjóri í Mósambík | ||
| "Fyrsta flokks" | ||
|
Ég er námsmaður á fyrsta ári í lyfjafræði og er áskrifandi að orðabókinni ykkar. Mig langar bara til þess að koma þökkum á framfæri, þakka ykkur fyrir frábært framlag og að halda kostnaði innan hæfilegra marka. Orðabókin ykkar er alveg fyrsta flokks og er algjörlega lífsnauðsynleg fyrir námsmann eins og mig. Takk fyrir og gangi ykkur vel. -- Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir | ||
| "Besta hjálpartæki sem ég hef eignast" | ||
|
Yngist allur þegar ég sest við tölvuna og opna orðabókina mína. Það er ótrúlegt að maður sem ekki kunni stakt orð í ensku getur bæði skrifað til og pantað frá erlendum fyrirtækjum eftir orðabókinni. Þetta er besta hjálpartæki sem ég hef eignast á sjötiu ára göngu mínni um jörðina. Mig hlakkar alltaf til að opna orðabókina, hún bjargar mér á hverju sem gengur. -- Árni Valdimarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali | ||
| "Hætt að hugsa um gömlu góðu orðabókina nema nauðbeygð" | ||
|
Ég get ekki orða bundist vegna hrifningar af þessum nýju möguleikum í orðabókinni, þ.e. glósunum og möguleikanum á að heyra framburð á orðum. Þetta er að verða svo gott að maður hættir að hugsa um að nota gömlu góðu orðabókina nema nauðbeygður. Kærar þakkir. -- Guðbjörg Garðarsdóttir | ||
| "Nota hana mikið í námi" | ||
|
Finnst þetta frábær síða. Nota hana mikið í því námi sem ég stunda. -- Jón Óskar Pétursson, nemi í Viðskiptaháskólanum Bifröst | ||
| "Hefur komið mér á óvart" | ||
|
Ég nota ordabok.is mjög mikið í starfi mínu. Bæði þegar ég er að vinna íslenskan texta og þegar ég er í erlendum samskiptum. Mjög notendavænt kerfi og algjör snilld að geta flett upp beygingum á íslenskum og enskum orðum. Hefur komið mér á óvart hvað hægt er að fletta miklu upp í gagnabankanum. -- Sigfús Þ. Sigmundsson, verkefnastjóri hjá Vinnumiðlun ungs fólks | ||
| "Hrikalega ánægð" | ||
|
Er hrikalega ánægð með orðabókina, hún er snögg að hugsa og beygingardæmið finnst mér algjör snilld. -- Fríða Björk Einarsdóttir | ||
| "Orðaforðinn frábær" | ||
|
Mig langaði til þess að láta vita af því að ég met það framtak sem ordabok.is er. Hún er þörf og aldeilis frábær að nota. Ég þarf að nota orðabók mikið við mína vinnu og orðabókin ykkar hefur verið mér mikil hjálp. Ekki væri úr vegi að minnast á að ég myndi fagna því mikið að hafa einnig aðgang að íslenskri/sænskri - sænskri/íslenskri orðabók. Kannski í framtíðinni leggið þið út á braut með að gera það að veruleika. Orðabókin er alveg kjörin til að hafa við hendina og orðaforðinn frábær. Ég er einnig áskrifandi að Málfari og er það frábær viðbót. Ég kýs ordabok.is í framtíðinni, alveg örugglega. -- Sigurveig Pálmadóttir, bókaútgefandi | ||
| "Álit mitt og virðing hefur aukist enn meira" | ||
|
Takk kærlega fyrir ordabok.is. Ég fékk tækifæri til að beta prófa útgáfu 3.0 með þér á sínum tíma. Hef svosem alltaf haft mikið álit á orðabókinni en eftir þá reynslu hefur álit mitt og virðing fyrir þessum hugbúnaði og þínu starfi aukist enn meira. -- Kristján Geir Mathiesen, deildarstjóri innri tölvumála hjá Nýherja | ||
| "Great dictionary" | ||
|
Thanks for the great dictionary and all the work that went into it and the work that continues to go into maintaining it! -- Rod Martel, Minneapolis | ||
| "Töfrasproti" | ||
|
Fékk töfrasprota í hendurnar þegar ég fékk orðabók.is. -- Hanna Björg Guðmundsdóttir | ||
| "Enskan mín batnaði" | ||
|
Þessi vefur er einhver sá alnotadrýgsti sem stendur til boða á netinu. Í daglegu starfi þarf ég oft að skrifa texta á ensku. Eftir að ég fór að nota ordabok.is var eftir því tekið erlendis hversu enskan mín hefði batnað. Orðaforðinn, málfræðin og annað sem stendur til boða hefur svo sannarlega reynst haldgott hjálpartæki og hverrar krónu virði. -- Ólafur Ástgeirsson, tæknifræðingur | ||
| "Game over" | ||
|
Orðabókin er mér mjög mikilvæg, annars er ég game over. -- Ásrún Karlsdóttir, nemi | ||
| "Alveg frábær" | ||
|
Þessi orðabók er alveg frábær og myndi örugglega gagnast í fyrirtækinu sem ég starfa hjá. Því langar mig til að vita hvað það kostar fyrir fyrirtækið að fá netaðgang fyrir ca. 5-8 tölvur. -- Guðjón Grétar Daníelsson | ||
| "Nýti mér ordabok.is mjög mikið" | ||
|
Takk kærlega fyrir ordabok.is. Ég er í skóla og er meirihluti námsefnis á ensku og nýti ég mér ordabok.is mjög mikið. Ég byrjaði á reynsluáskrift en er nú komin með 6 mánaða áskrift. -- Hildur Gylfadóttir, grafískur hönnuður, yogakennari og kennaranemi | ||
| "Þakkir" | ||
|
Þakkir fyrir frábæra orðabók. -- Guðmundur Ármann | ||
| "Ef ég er ekki viss um hvernig skrifa skuli orðið" | ||
|
Hef aðeins aðgang að orðabokinni í gegnum vinnuna og hef ekki þurft að nota hana mikið þar, en það litla sem ég hef þurft á því að halda hefur það hjálpað mikið. Sér í lagi ef ég er ekki viss um hvernig skrifa skuli orðið. Engu að síður, gott framtak að hafa þetta á netinu. -- Sigríður Perla Thorsteinson, ritari | ||
| "Alltaf í endurskoðun" | ||
|
Þægileg og hraðvirk. Einnig er stór eiginleiki að hún er alltaf í endurskoðun og því hefur maður yfirleitt alltaf nýjustu þýðingar, sem er mikilvægt þar sem bæði málin eru í mikilli og hraðri þróun og breytast ört. -- Baldur Þór Emilsson, nemi | ||
| "Ég gef henni fyllstu meðmæli" | ||
|
Hef notað orðabókina nú í bráðum 3 ár. Rita mikið af enskum fræði- og vísindagreinum og geri talsvert af því að þýða tæknilegt efni af íslensku á ensku og öfugt. Orðabókin hefur reynst mér mjög vel. Orðaforðinn er mjög mikill og vandaður. Jafnframt er orðabókin mjög þægileg í notkun. Ég gef henni fyllstu meðmæli. -- Dr. Einar Tjörvi Elíasson, verkfræðingur | ||
| "Jafnt heima sem í vinnunni" | ||
|
Frábært framtak. Nota orðabókina jafnt heima sem í vinnunni og líkar stórvel. Takk fyrir. -- Sigurbergur Kristjánsson | ||
| "Hefur bjargað mér" | ||
|
Mér finnst þetta flott. Koma með önnur tungumál væri alveg brilljant. Þetta hefur bjargað mér stundum. Fínt að þurfa ekki fletta uppí bók :). -- Anton Steinn Bjarkarson, blaðberi, grunnskólanemi | ||
| "Reynst vel í tvö ár" | ||
|
Ordabok.is hefur reynst mér afar vel þau tvö ár sem ég hef notað þjónustuna. Stærsti kosturinn við ordabok.is að mínu mati er sá að geta tengst orðabókinni hvar sem er, hvenær sem er og í hvaða tölvu sem er. -- Þorbjörn Þórðarson, laganemi | ||
| "Mikið og þarft framtak" | ||
|
Ég byrjaði að nota Orðabók Aldamóta 1993 og fannst þá strax að hér væri mikið og þarft framtak á ferðinni. Ég keypti þá notendaleyfi fyrir nemendur Ölduselsskóla og nemendur og kennarar tóku verkfærinu fagnandi. Sjálfur er ég afar háður verkfærinu og það hefur oft sparað mér vinnu að hafa það til taks á tölvunni minni. Þegar orðabókin kom á netið ákvað ég strax að fá aðgang inn á hana fyrir nemendur Ölduselsskóla og í framhaldi af því samdi Fræðslumiðstöð Reykjavíkur um að orðabókin væri opin fyrir alla nemendur í grunnskólum Reykjavíkur innan skólakerfisins. Allir nemendur og starfsmenn skólanna njóta nú góðs af þessu frábæra framtaki. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að menntamálayfirvöld eigi að kaupa aðgang fyrir alla landsmenn að orðabókinni, því þetta er svo gagnlegt tæki og mikilvægt og vegna fámennis þá er trúlega erfitt og varla arðbært að þróa og viðhalda verkfæri sem þessu á samkeppnismarkaði. Annað eins hefur nú verið gert sbr. þegar menntamálaráðherra keypti aðgang fyrir alla landsmenn að Encyclopædia Britannica á netinu. Með von um að orðabókin eigi eftir að lifa, dafna og þróast áfram. -- Valdimar Helgason, aðstoðarskólastjóri Ölduselsskóla | ||
| "Alger bjargvættur" | ||
|
Fyrir mig er orðabókin alger bjargvættur enda nota ég hana daglega. Takk fyrir frábæra þjónustu. -- Sigurður Guðmundsson | ||
| "Mjög gott framtak" | ||
|
Vil ég hrósa ykkur í leiðinni fyrir mjög gott framtak því þetta hefur komið að alveg gífurlega góðum notum. -- Benedikta Ketilsdóttir, ráðgjafi | ||
| "Hjálpar mér við skilning" | ||
|
Ég nota orðabókina nokkuð mikið í mínu námi til að fletta upp orðum og orðasamböndum. Sparar mér mikinn tíma og hjálpar mér við skilning á því sem stendur í námsbókunum. -- Eyjólfur Lárusson, nemi | ||
| "Ánægðir áskrifendur" | ||
|
Orðabókin er mjög góð og gaman að vita að stöðugt er verið að vinna að nýjungum. Við erum ánægðir áskrifendur, bæði námsmenn og aðrir hér á heimilinu. Eina sem mætti bæta er að það eru smá "torfærur" við endurnýjunina og aðgangsorðin. Þið eruð að vinna frábært starf. -- Halldór J. Theodórsson | ||
| "Mikið af fagorðum" | ||
|
Það hefur oft komið mér á óvart hvað ordabok.is inniheldur mikið af fagorðum frá t.d. stærðfræði- og tölvuheiminum. Ég vona að þetta vefsetur sé komið til frambúðar, þetta er vönduð orðabók sem hefur reynst mér ómetanleg og sem ég veit að mun gagnast öllum sem á einhvern hátt þurfa að eiga við enskan texta. Kærar þakkir og gangi ykkur vel! -- Jón Óskar Magnússon | ||
| "Með ordabok.is í nokkur ár" | ||
|
Nú hef ég áhuga á að kaupa Málfar sem er verið að bjóða hjá ykkur á netinu. Við erum með ordabok.is sem við erum búinn að vera með í nokkur ár og langar að bæta þessum frábæra kosti við. -- Jónína Gunnarsdóttir, veitingastjóri hjá Kaffi Reykjavík | ||
| "Reynst vel við ritgerðarsmíðar á ensku" | ||
|
Glæsilegt framtak að bjóða þessa vönduðu orðabók í vefáskrift. Hún hefur reynst mér vel í náminu, einkum við ritgerðarsmíðar á ensku. -- Ingvaldur Einarsson, MBA nemi við Edinborgarháskóla | ||
| "Hefur sparað mér mikinn tíma" | ||
|
Það er gott að hafa orðabókina á netinu við hendina þegar er maður í námi. Ég er miklu fljótari að fletta upp orðum á þann hátt og þetta hefur sparað mér mikinn tíma og gert mitt nám léttara. -- Gunnar Tryggvason | ||
| "Til taks á erlendri grund" | ||
|
Ég starfa á erlendri grund og nota þar af leiðandi ensku í mínum viðskiptum, oft koma upp orð sem ég ekki skil á fundum og þá er gott að hafa orðabókina á netinu til taks. Orðabókin hefur hjálpað mér mikið í gegnum tíðina. -- Kristinn Skúlason, Manager, Optimal Canada Ltd. | ||
| "A very efficient e-dictionary" | ||
|
I can just barely read Icelandic. Nevertheless, as an individual I use ordabok.is and it's very useful in reading Icelandic forestry and agricultural websites (I've been working with Icelandic foresters for 20+ years). You have produced a very efficient e-dictionary. -- Alexander Robertson | ||
| "Gæti ekki unnið" | ||
|
Gæti ekki unnið eða stundað nám án orðabókarinnar! -- Benedikte Thorsteinsson | ||
| "Til að staðfesta stafsetningu og ná í samheiti" | ||
|
Ég nota ordabok.is mikið þegar ég er að skrifa á ensku, bæði til að staðfesta stafsetningu og til að ná í samheiti. -- Stefán Már Stefánsson, líffræðingur | ||
| "Ekki dýrt" | ||
|
Ég er mjög ánægður með orðabok.is og þá sérstaklega verðið. Það þykir mér ekki dýrt að borga 2500 kr á ári fyrir stóran gagnagrunn og geta flett upp orðum á "no-time". -- Ólafur Kári Júlíusson, sálfræðinemi | ||
| "Viljum gjarnan endurnýja" | ||
|
Við höfum verið áskrifendur að ordabok.is á netinu. Áskriftin er nú runnin út og við viljum gjarnan endurnýja þau leyfi sem við höfðum. Hvernig snúum við okkur í því? Vinsamlegast svarið sem allra fyrst. -- Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri hjá Hönnun hf | ||
| "Að miðla 19. aldar heimi" | ||
|
Ég sit um þessar mundir við að þýða ævisögu Stephans G. Stephanssonar á ensku. Orðabókin á netinu er ómetanlegt hjálpartæki. Það er mjög fljótlegt að leita og orðaforðinn er orðinn býsna góður. Ég þarf æ sjaldnar að fletta upp í gömlu orðabókinni hans Geirs Zoega þótt þetta sé 19. aldar heimur sem ég er að miðla! -- Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur | ||
| "Magnað fyrirbæri" | ||
|
Ég rek vefsetrið http://spamadur.is og þessa dagana ligg ég bókstaflega yfir vefnum og reyni að þýða spádómsspilin yfir á góða ensku og þar er ordabok.is bjargvætturinn minn. Ég held glaðværð minni og jafnvægi því ordabok.is auðveldar mér vinnuna svo sannarlega. Magnað fyrirbæri. -- Ellý Ármannsdóttir, sjónvarpsþula og eigandi http://spamadur.is | ||
| "Flottur vefur" | ||
|
Ég er mjög ánægður með orðabókina og sérstaklega viðbótina að geta hlustað á framburð orðanna. Flottur vefur, sem mér finnst þægilegt að vinna með og nota. -- Einar Gíslason, Brekkutúni 3, Sauðárkróki | ||
| "Nota hana mikið" | ||
|
Mig langar bara til að láta í ljós ánægju mína með ordabok.is. Ég nota hana mikið. Ég er sérstaklega ánægð með þá viðbót að geta hlustað á framburð orðanna. -- Birna Íris Jónsdóttir | ||